Minningarsteinn um Sigurstein Gíslason, fyrrum leikmann karlaliðs ÍA í knattspyrnu, verður afhjúpaður í kvöld á Akranesvelli. Þetta kemur fram í tilkynningu. 

ÍA tekur á móti Víkingum í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarkeppni KSÍ á Elkem vellinum í kvöld og hefst leikurinn kl. 20.15. 

Sigursteinn eða „Steini Gísla“ er sigursælasti leikmaður Íslands í efstu deild karla – en hann varð 9 sinnum Íslandsmeistari og þrívegis bikarmeistari á ferli sínum.  Hann fæddist á Akranesi þann 25. júní árið 1968. Hann lést þann 16. janúar 2012. 

Minningarsteinninn er staðsetur þar sem að leikmenn ganga inn á Akranesvöll – og verður keppnisbolti hvers leiks staðsettur á steininum þegar leikmenn ganga inn á völlinn. 

Ýmis fyrirtæki stóðu að þessu verkefni í samstarfi við Knattspyrnufélag Akraness. Í tilkynningunni kemur eftirfarandi fram: 

„Við þökkum S. Helgasyni fyrir að gefa steininn, og Trésmiðjunni Akur, Blikksmiðju Guðmundar, Steðja, ÞÞÞ og Þrótti fyrir ómetanlegt framlag við að fullgera steininn og koma honum fyrir.“

Sigursteinn lék 335 leiki fyrir ÍA og skoraði í þeim 40 mörk. Hann lék 22 leiki með A-landsliði  Íslands.  Hann lék einnig með KR og Víkingi Reykjavík í efstu deild og var um tíma í herbúðum enska liðsins Stoke.