Gunnlaugur hættur með ÍA og Jón Þór tekur við

Gunnlaugur Jónsson er hættur sem þjálfari meistaraflokks karla í knattspyrnu. Þetta kemur fram í ítarlegri yfirlýsingu sem stjórn KFÍA sendi frá sér í dag. Jón Þór Hauksson, aðstoðarþjálfari liðsins, mun stýra liðinu út leiktíðina. Í yfirlýsingunni þakkar stjórn KFÍA Gunnlaugi fyrir gott samstarf og góð störf í þágu félagsins síðustu árin. Sérstaklega þakkar stjórn Gunnlaugi fyrir þau stóru skref sem stigin
hafa verið undir hans stjórn í uppbyggingu ungra leikmanna.

Yfirlýsinguna má lesa í heild sinni hér fyrir neðan:

ÍA er í neðsta sæti Pepsideildarinnar með 10 stig eftir 16 umferðir.
Næstu leikir ÍA eru:

Sun. 27. ágúst. 18:00
Breiðablik – ÍA Kópavogsvöllur

Sun. 10. september. 17:00
ÍA – KA Norðurálsvöllurinn

Fim. 14. september. 17:00
Fjölnir – ÍA Extra völlurinn

Sun. 24. september. 14:00
Víkingur R. – ÍA Víkingsvöllur

Lau. 30. september 14:00
ÍA – Víkingur Ó. Norðurálsvöllurinn

Ágætu stuðningsmenn og aðrir velunnarar,

Gunnlaugur Jónsson hefur óskað eftir því við stjórn KFÍA að stíga til hliðar sem þjálfari
meistaraflokks karla. Eftir leik félagsins gegn ÍBV í gærdag kom Gunnlaugur að máli við
stjórnarmenn og reifaði þá hugmynd hvort rétt væri í ljósi stöðunnar að hann viki til hliðar.
Stjórn KFÍA hefur fallist á beiðni Gunnlaugs og falið Jóni Þór Haukssyni að taka við þjálfun
liðsins út tímabilið. Stjórn KFÍA þakkar Gunnlaugi fyrir gott samstarf og góð störf í þágu
félagsins síðustu árin. Sérstaklega þakkar stjórn Gunnlaugi fyrir þau stóru skref sem stigin
hafa verið undir hans stjórn í uppbyggingu ungra leikmanna.

 

Árangur á yfirstandandi tímabili hjá meistaraflokki karla hefur ekki gengið eftir eins og
markmiðið var fyrir tímabilið. Eftir ágætan árangur á undanförnum þremur keppnistímabilum
hefur komið bakslag og róa strákarnir okkar nú lífróður fyrir sæti sínu í deild þeirra bestu.
Á fjórum undanförnum tímabilum að þessu tímabili meðtöldu hefur félagið starfað mjög
ákveðið eftir stefnu þar sem ungum iðkendum í Knattspyrnufélagi ÍA (KFÍA) eru gefin
tækifæri til þess að sanna sig í meistaraflokki með tilheyrandi trausti frá þjálfurum. Hefur
þessi stefna félagsins vakið eftirtekt og verið hrósað víða, t.a.m. af landsliðsþjálfara Íslands
Heimi Hallgrímssyni. Þessi stefna er ekki áhættulaus en yngri leikmenn félagsins þurfa að
njóta skjóls frá eldri og reyndari leikmönnum á meðan þeir afla sér reynslu og öðlast styrk í
baráttu meðal þeirra bestu.

 

Frá haustmánuðum 2016 hefur hvert áfallið á fætur öðru dunið yfir í leikmannahópi félagsins
þegar horft er til reynslumeiri leikmanna. Ármann Smári Björnsson sleit hásin undir lok
síðasta tímabils og ákvað hann í framhaldinu að leggja skóna á hilluna. Í nóvembermánuði
s.l. sleit Árni Snær Ólafsson krossbönd sem héldu honum frá leik þar til í ágúst á þessu ári.
Darren Lough tilkynnti félaginu í desembermánuði s.l. að hann myndi ekki geta uppfyllt
samning sinn við félagið vegna skuldbindinga heima fyrir. Þá tilkynnti Iain Williamson félaginu
snemma á þessu ári að hann þyrfti að leggja skóna á hilluna vegna meiðsla sem hann hefur
verið að glíma við á undanförnum árum. Þessu til viðbótar kom í ljós á undirbúningstímabilinu
að Guðmundur Böðvar Guðjónsson glímdi við álagsbrot á fæti auk þess sem Arnór Snær
Guðmundsson hélt til Bandaríkjanna til náms í ágúst í fyrra og kom ekki til baka til liðs við
félagið fyrr en í byrjun móts. Alls voru það því sex lykilleikmenn sem ljóst var að myndu ekki
hefja Íslandsmótið með okkur í upphafi sumar.

 

Bæði stjórnarmenn og þjálfarar liðsins gerðu sér grein fyrir því að það yrði mjög erfitt verkefni
að finna leikmenn í stað þeirra sex ofantalinna. Það var ekki bara af fjárhagslegum ástæðum
heldur líka af þeim sökum að okkur Skagamönnum hefur ekki tekist vel upp á undanförnum
árum að fá til liðs við okkur sterka íslenska leikmenn frekar en öðrum félögum á
landsbyggðinni. Það er líka mikil áhætta falin í því að ráða erlenda leikmenn eins og dæmin
sanna. Staða félagsins í deildinni ber þess merki að liðið er mjög ungt þrátt fyrir að spila
skemmtilegan og ógnandi fótbolta í sumar.

 

Stjórn KFÍA gerir sér grein fyrir því að stuðningsmenn félagsins eru ekki sáttir með gang mála
og við erum það ekki heldur. Stjórn félagsins ber höfuðábyrgð á því að hafa ekki tekist
nægjanlega vel að leysa framangreindan leikmannavanda.. KFÍA er að takast ágætlega að
byggja upp unga knattspyrnumenn og konur. Leikmannahópur okkar í meistaraflokk er
frábær hópur til framtíðar litið en sem dæmi í því samhengi er fjöldi leikja með yngrilandsliðum Íslands á undanförnum árum. Auk þess hafa tveir leikmenn félagsins leikið með
A-landsliði Íslands á undanförnum tveimur árum. Á þessu ári hafa tveir leikmenn KFÍA verið
seldir til erlendra félaga, sem er einnig gott dæmi um það uppbyggingarstarf sem á sér stað
innan félagsins. Það að leikmenn KFÍA fái tækifæri í hörðum heimi atvinnumennskunnar og
þannig tækifæri til að reyna sig á meðal þeirra bestu er í fullkomnu samræmi við stefnu
félagsins og markmið. Að mörgu leyti stefnir félagið því í rétta átt, þó svo að árangur ársins
sé ekki á þeim nótum sem við Skagamenn gerum kröfur til, eitthvað sem stjórn félagsins gerir
sér fullkomlega ljóst.

 

Það hefur reynst okkur Skagamönnum best í gegnum tíðina að standa saman og berjast sem
einn maður þegar á móti blæs, mörg dæmi sanna það. Framtíð knattspyrnunnar er björt á
Skaganum og við erum rosalega stolt af þessu frábæra félagi okkar. Við erum nær því í dag
en við höfum verið um langt skeið að búa til lið byggt á heimamönnum sem getur barist á
meðal þeirra bestu. Við verðum að gefa drengjunum okkar tíma til að þroskast enn frekar og
styðja þá þó á móti blási. Á sama tíma þurfum við að standa okkur betur í því að ná í þær
styrkingar utan frá sem nauðsynlegar eru á hverjum tíma.
Að lokum vill stjórn KFÍA koma á framfæri sérstöku þakklæti til stuðningsmanna félagsins
sem hafa heldur betur látið í sér heyra og þétt raðirnar á undanförnum vikum í mótbyrnum
sem strákarnir okkar eru í núna. Kærar þakkir fyrir ykkar gríðalega mikilvæga framlag í
baráttunni. Áfram ÍA !

Stjórn KFÍA
Akranesi 21. ágúst 2017