Valdís Þóra lék vel en það dugði ekki til á Spáni

Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi er úr leik á LET móti á Evrópumótaröðinni í golfi – sterkustu atvinnumótaröð Evrópu. Mótið fór fram í Andalúsíu og heitir Costa del Sol Open. Valdís lék vel á öðrum hringnum eða 70 höggum -2 en hún lék ekki vel á fyrsta hringnum eða 78 höggum +6. Hún lék því á +4 samtals og komst ekki í gegnum niðurskurðinn.

Mótið er það fimmta hjá Valdísi á sterkustu mótaröð Evrópu á þessu tímabili. Hún er í 91. sæti peningalistans. Valdís hefur komist í gegnum niðurskurðinn á þremur af alls fjórum mótum ársins og besti árangur hennar er 22. sæti.

Til þess að halda keppnisréttinum á LET Evrópumótaröðinni þurfa keppendur að vera í einu af 80 efstu sætunum á peningalistanum í lok keppnistímabilsins. Og það gæti dugað að vera í næstu sætunum þar fyrir neðan ef það eru kylfingar á topp 80 sem ná ekki að uppfylla kröfuna um lágmarksfjölda móta á tímabilinu.