Vel heppnað íbúaþing um farsæl efri ár á Akranesi

Það var góð mæting á íbúaþing um farsæl efri ár sem fram fór í Grundaskóla s.l. miðvikudag. Á heimasíðu Akraneskaupstaðar er greint frá því að allt hafi tekist vel en Ingrid Kuhlman frá Þekkingarmiðlun ehf. stýrði þinginu.

Góðar umræður voru á þinginu sem var með þjóðfundarfyrirkomulagi og verða niðurstöður birtar í lok október.

Þær verða nýttar til stefnumótunar í þessum málaflokki.

Markmið íbúaþingsins var að leita svara við eftirfarandi spurningum:

Hvað er gott við að eldast á Akranesi?
Hvernig viltu sjá málefni eldri borgara á Akranesi þróast?
Hvernig getur Akraneskaupstaður stuðlað að farsælum efri árum?
Hvað getum við sem einstaklingar gert til að stuðla að farsælum efri árum?

Á akranes.is er að finna myndasyrpu frá þinginu sem Jónas Ottósson tók. 

Íbúaþing um farsæl efri ár. Mynd/Jónas.