Skagakonan Hallbera Guðný Gísladóttir tók þátt í einum stærsta sigri Íslands frá upphafi þegar kvennalandslið Íslands lagði Þýskaland 3-2 á útivelli í undankeppni heimsmeistaramótsins 2019.
Hallbera og félagar hennar í landsliðinu skrifuðu nýjan kafla í íslensku knattspyrnusögunna með því að skora í fyrsta sinn gegn Þjóðverjum í landsleik.
Árangurinn er einnig sögulegur gegn áttföldum Evrópumeisturum, tvöföldum heimsmeisturum – og ríkjandi ólympíumeisturum.
Hallbera Guðný var ekki eini Skagamaðurinn sem kom að þessum frábæra sigri. Ásmundur Haraldsson aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins er búsettur á Akranesi og er unnusti Ernu Hafnes listakonu og kennara. Margrét Ákadóttir er liðsstjóri íslenska hópsins og Óskar Guðbrandsson er einnig í þessu frábæra teymi sem fjölmiðla – og kynningarfulltrúi.
Þetta var einnig fyrsti sigur Íslands gegn Þjóðverjum í landsleik. Þjóðirnar mættust í fyrsta sinn fyrir 30 árum og hafði Þýskaland skorað yfir 50 mörk samtals gegn engu fram að leiknum í dag.
Ísland vann 8:0-stórsigur gegn Færeyjum í fyrstu umferð undankeppninnar og Þýskaland hefur borið sigur úr býtum í fyrstu tveimur leikjum sínum.
Þýskaland vann öruggan 6:0-sigur gegn Slóveníu í fyrstu umferðinni og lagði Tékkland að velli með einu marki gegn engu í annarri umferðinni.
Eitt lið kemst beint á HM úr hverjum riðli af alls sjö í Evrópu og fjögur lið sem enda í öðru sæti keppa síðan um eitt laust sæti til viðbótar í umspili.