Jólaævintýrið verður áfram í Garðalundi

Jólaævintýrið í Garðalundi verður fastur liður í jóladagskrá Skagamanna næstu árin því nýverið var skrifað undir samstarfssamning þess efnis til þriggja ára. Margrét Blöndal, Sara Blöndal og Hlédís Sveinsdóttir munu sjá um viðburðin líkt og í fyrra.

Markmiðið er að búa til vettvang þar sem fjölskyldur á Akranesi geta komið saman og átt góðar stundir á aðventunni.

Frá vinstri: Ella María Gunnarsdóttir forstöðumaður menningar- og safnamála, Margrét, Sara, Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri, og Hlédís.

Jólaævintýrið var haldið í fyrsta sinn í fyrra og komu hátt í 2000 manns saman í leit að jólasveininum og fengu um leið að upplifa töfra Garðalundar.

Í ár verður aftur efnt til slíkrar gleði. Farið verður út eftir kvöldmat með vasaljós og kyndla og tröll, álfar, skógarpúkar og fleiri verur munu taka á móti börnum bæjarins og fylgdarfólki þeirra. Ef til vill kemur jólasveinninn og jólakötturinn.

 

Jólaævintýrið var haldið í fyrsta sinn í fyrra og komu hátt í 2000 manns saman í leit að jólasveininum.


„Ýmislegt fleira verður í boði á aðventunni en desember er mánuður leyndarmála og því best að segja sem minnst. Hlakka bara til og njóta þegar þar að kemur.“ segir Margrét Blöndal um fleiri uppákomur sem þær munu standa fyrir á aðventunni.

Frá þessu er greint á akranes.is