Skagamenn halda áfram að safna leikmönnu fyrir næsta tímabil í Inkasso-deildinni í knattspyrnu karla. Í dag skrifaði Hörður Ingi Gunnarsson undir samning við ÍA til þriggja ára. Hörður hefur leikið ýmsar stöður í vörninni en hann er fæddur árið 1998 og verður því tvítugur á næsta ári.
Hörður er uppalinn hjá FH og lék með Víking Ólafsvík í Pepsi-deildinni s.l. sumar. Hann lék 10 leiki með HK á síðustu leiktíð og þekkir Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari ÍA því Hörð Inga vel því vel en Jóhannes var þjálfari HK. Hörður Ingi hefur leikið með öllum yngri landsliðum Íslands.
![](https://skagafrettir.is/wp-content/uploads/2017/10/01hördur-1132x670.jpg)
Knattspyrnufélag ÍA fagnar komu Harðar á Skagann og telur að hann eigi eftir að leika lykilhlutverk í því uppbyggingarstarfi sem framundan er við koma liðinu aftur í deild þeirra bestu.
„Það eru gleðitíðindi að fá Hörð Inga til félagsins. Hörður er hörku leikmaður sem styrkir okkur mikið. Hann er líka með mikinn metnað til að ná langt í fótbolta og það helst í hendur við það sem við ætlum okkur hérna á Skaganum” sagði Jóhannes Karl þjálfari skagamanna.
,, Ég er gríðarlega ánægður og þakklátur fyrir þetta skref. Ég hlakka óendanlega til að fá að taka þátt í metnaðarfullri vegferð hjá félagi sem hefur svo ríka sögu, geggjaða umgjörð og mikið af frábæru fólki sem vill leggja sína orku í að verða meðal þeirra bestu“ sagði Hörður Ingi.