Matthías Leó sigraði á Opna írska keilumótinu

Opna írska keilumótið fyrir yngri leikmenn fór fram í Dublin og tóku þrír Skagamenn úr Keilufélagi Akraness þátt.

Matthías Leó Sigurðsson gerði sér lítið fyrir og sigraði í sínum aldurshópi – en hann var í öðru sæti þegar kom að undanúrslitum. Matthías Leó sigraði í öllum þremur leikjunum í undanúrslitum og stóð uppi sem sigurvegari. Fékk hann keilukúlu og 25 Evrur í verðlaun fyrir stigahæsta leikinn í þessum aldursflokki.

Jóhann Ársæll Atlason og Ólafur Sveinn Ólafsson kepptu báðir í 16-19 ára flokknum en þeir voru á meðal þeirra yngstu í þessum flokki. Jóhann endaði í 12. sæti eftir að hafa þokað sér úr 16. sætinu í undanúrslitum. Ólafur Sveinn endaði í 23. sæti.

Matthías Leó.