Kaja Organic framleiðir lífrænt pasta á Akranesi

Framleiðsla á íslensku og lífrænu pasta hóst í byrjun vikunnar á Akranesi. Það er Kaja Organic sem stendur á bak við framleiðsluna en þar fer Karen Jónsdóttir frumkvöðull og eigandi fyrirtækisins fremst í flokki.

Kaja Organic rekur annars vegar Matarbúr Kaju og hins vegar Café Kaju á Akranesi. Í frétt á akranes.is segir Kaja m.a. að hún hafi gripið tækifærið þegar ljóst var að hlé yrði á framleiðslu Norðurárdals pasta í Hreðavatnsskála.

Katrín afhendir Sævari bæjarstjóra fyrsta skammtinn af lífræna pastanu sem framleitt var á Akranesi.

„Vegna aukinnar eftirspurnar eftir pastanu var ljóst að framleiðslunni yrði að halda áfram og verður því pastað framleitt undir vörumerkinu Kaja. Framleiðsla af þessu toga er sú fyrsta sinnar tegundar á Akranesi.“

Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri og matarunnandi fékk þann heiður að aðstoða við fyrstu framleiðsluna og fékk í staðin fyrsta pasta skammtinn.

Áhugasömum er bent á að hægt er að versla ferskt íslenskt lífrænt pasta alla virka daga hjá Kaju.

Nánari upplýsingar á facebooksíðu Kaju.