Valdís Þóra skrifaði nýjan kafla í golfsöguna

Skagakonan Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni frá Akranesi náði besta árangri sem íslenskur kylfingur hefur náð á einni af stóru atvinnumótaröðunum í golfi. Valdís Þóra endaði í þriðja sæti á Sanya mótinu sem lauk í Kína aðfaranótt sunnudags og en hún var í öðru sæti fyrir lokahringinn. Með árangri sínum náði Valdís að gulltryggja sér keppnisrétt á sterkustu mótaröð Evrópu á næsta tímabili. Hún var í 113. sæti stigalistans fyrir mótið í Kína en með árangri sínum flaug hún upp í 50. sæti en þetta er næst síðasta mótið á keppnistímabilinu hjá Valdísi.

Til þess að halda keppnisréttinum þurfa kylfingar á LET Evrópumótaröðinni að vera í einu af 80 efstu sætunum á stigalistanum í lok tímabilsins.

Hún lék frábært golf á fyrstu tveimur hringjunum en hún endaði á -7 samtals (68-69-72). Hún var fimm höggum á eftir Celine Boutier frá Frakklandi sem sigraði á -12 samtals og Solar Lee frá Suður-Kóreu varð önnur á -8 samtals.

Valdís Þóra hefur aldrei náð betri árangri á sterkustu atvinnumótaröð Evrópu og er þetta jafnframt besti árangur sem íslenskur kylfingur hefur náð á stóru atvinnumótaröðunum í golfi.

 

Hér má sjá viðtal við Valdísi sem tekið var eftir 2. keppnisdaginn.

Staðan er hér:

 

Valdís Þóra var í 113. sæti á stigalista LET Evrópumótaraðarinnar. Hún þurfti að vera í hópi 80 efstu í lok tímabilsins til þess að tryggja keppnisréttinn á næsta tímabili. Mótið í Kína er 8. mótið á tímabilinu hjá Valdísi á sterkustu atvinnumótaröð Evrópu. Besti árangur hennar fyrir þetta mót var 22. sæti og hún varð í fimmta sæti á úrtökumóti fyrir Opna bandaríska meistaramótið – þar sem hún komst inn fyrst allra íslenskra kylfinga.