Bæjarstjórnarfundur unga fólksins á Akranesi fer fram í dag í bæjarþingsalnum Stillholti 16-18.
Þar taka til máls unglingar úr grunnskólunum á Akranesi, Þorpinu, Arnardal auk Fjölbrautaskóla Vesturlands.
Þar flytja þau ýmis erindi og taka þátt í umræðum.
Fundurinn hefst kl. 16:30 í dag, þriðjudaginn 21. nóvember er öllum opinn. Bæjarbúar eru hvattir til að mæta og kynna sér bæjarmálin.