Framtíð ferðamála á Akranesi til umræðu á fundi í Garðakaffi

Ferðamál eru ofarlega í huga margra á Akranesi enda hefur ferðamönnum fjölgað miki á undanförnum árum. Framtíðarsýn ferðamála á Akranesi verða rædd á opnum fundi sem fram fer á Garðakaffi, Byggðasafninu Görðum miðvikudaginn 29. nóvember 2017. Fundurinn hefst kl. 17. og stendur til 20. Boðið verður upp á súpu á fundinum og óska skipuleggjendur fundarins eftir því að fundargestir skrái sig hér.

Umræðuefni fundarsins er:  Hvernig vilt þú sjá framtíðarþróun ferðamála á þínu svæði?

Skráning fer fram hér!

Tilurð þessa súpufunda kemur til vegna undirbúningsvinnu fyrir DMP – Destination Management Plan eða áfangastaðaáætlanir DMP á landsvísu, en unnið út frá landssvæðum.

DMP er heildstætt ferli þar sem litið er til skipulags og samhæfingar í þróun og stýringu allra þeirra þátta sem geta haft áhrif á upplifun ferðamanna á viðkomandi svæði/áfangastað, þar með talið þarfir gesta, heimamanna, fyrirtækja og umhverfis. DMP áætlanir verða unnar í hverjum landshluta fyrir sig og svo sameinað í eina heildar stefnumarkandi stjórnunaráætlun í ferðamálum fyrir Ísland.

Hægt er að lesa nánar um DMP verkefnið hér.