Fjórir Skagamenn kepptu á Norðurlandamótinu

Sundfélag Akranes átti þrjá sundmenn í íslenska landsliðinu sem keppti á Norðurlandameistarmóti nú um helgina. Þar að auki var Inga Elín Cryer frá Akranesi í íslenska landsliðinu en hún keppir fyrir Sundfélagið Ægi í Reykjavík.

Ágúst Júlíusson, Sævar Berg Sigurðsson og Brynhildur Traustadóttir voru á meðal 193 keppenda á NM en alls komu keppendur frá níu löndum ( Noregur, Svíðþjóð, Danmörk, Finnland, Eistland, Lettland, Litháen, Ísland og Færeyjar )

Sævar Berg, Brynhildur, Ágúst og Inga Elín:

Ágúst synti 100 m. flugsund á góðum tíma, 54.63 sek. Hann hafnaði í 4 sæti og var í harðri baráttu um verðlaunasæti en aðeins 0.15 sek skildu að frá bronsinu. Í 50 m. flugsundi lenti Ágúst í 5. sæti á tímanum 24.65 sek., en þar var einnig lítið á milli efstu sætanna.

Sævar Berg synti nálægt sínum besta tíma í 50 m. bringusundi og hafnaði í 17. sæti. Hann synti á tímanum 30.72 sek.

Brynhildur synti 400 m. skriðsund aðeins á eftir sínum besta tíma eftir góða byrjun á sundinu þar sem hún synti hraðar en hennar besti tími í 200 m. en erfiðara reyndist að halda því út 400 metrana. Brynhildur hafnaði í 13. sæti.

Sævar Berg, Brynhildur og Ágúst.

Íslenska landsliðið í sundi sem keppti á NM.

Skagamenn áttu einnig fulltrúa í eftirtöldum borðsundssveitum :

5. sæti : 4×100 skrið karla, Davíð, Ágúst, Brynjólfur og Huginn
5. sæti : 4×100 fjórsund karla, Brynjólfur, Sævar Berg, Águst og Davið
6. sæti : 4×100 skrið ( 13- 16 ára), Jóhanna Elin, Kristin, Brynhildur og Ragna
6. sæti : 4×100 fjórsund ( 13- 16 ára) , Adele, Brynhildur, Jóhanna Elin og Ragna

Íslenska liðið fékk alls sex bronsverðlaun og ein gullverðlaun á mótinu en það var Davíð Hildiberg sem sigraði í 100m baksundi.

Inga Elín Cryer komst í úrslit í 100 metra flugsundi þar sem hún varð fimmta á tímanum 1.03,69 mín.

Inga Elín Cryer.