Fyrirtækin Skaginn hf., Þorgeir & Ellert hf. og 3X Technology ehf. hafa fyrir hönd starfsmanna sinna ákveðið að stuðla að bættum gæðum og faglegri vinnu við barna- og unglingastarf íþróttahreyfinga í heimabyggð. Íþróttabandalag Akraness og Héraðssamband Vestfirðinga hljóta styrk upp á samtals 4.5 milljónir kr.
Stofnaðir hafa verið sérstakir bankareikningar hjá Íslandsbanka, annarsvegar á Akranesi og hinsvegar á Ísafirði, sem eingöngu verða ætlaðir til stuðnings við barna- og unglingastarf íþróttahreyfinganna.
Stuðningurinn er veittur í nafni starfsmanna fyrirtækjanna og er ætlað að bæta barna- og unglingastarf íþróttahreyfinganna árið 2018 með sérstakri áherslu á forvarnargildi íþróttaiðkunar.
Þar sem barna- og unglingastarf er langtímaverkefni gefa fyrirtækin nú jafnframt fyrirheit um sambærilegan stuðning, að ári, fyrir árið 2019.
Skaginn og Þorgeir & Ellert styðja Íþróttabandalag Akraness samtals að upphæð 3.000.000,– og hafa fyrirtækin greitt þá upphæð inn á bankareikning 0552-14-350180.
3X Technology styður Héraðssamband Vestfirðinga að upphæð 1.500.000,– og hefur fyrirtækið greitt þá upphæð inn á bankareikning 0556-14-400730.
Stuðningurinn er ekki sérstaklega ætlaður ákveðnum aðildafélögum innan íþróttahreyfinganna og munu forsvarsmenn hreyfinganna sjá um með hvaða hætti stuðningurinn, í þágu barna- og unglingastarfs í heimabyggð, verði nýttur.
Stuðningurinn er einungis ætlaður sem viðbót við núverandi barna- og unglingastarf og ekki ætlaður til frekari fjárfestinga innan íþróttahreyfinganna.
Fyrirtækin hvetja sem flesta, bæði einstaklinga og lögaðila, að leggja verkefninu lið og þannig styðja við börn og ungmenni í sinni heimabyggð og má leggja frjáls framlög inn á eftirfarandi reikninga sem eingöngu eru ætlaðir til stuðnings við barna- og unglingastarf íþróttahreyfinganna:
Íþróttabandalag Akraness þakkar Skaganum hf., Þorgeiri og Ellert hf. og starfsmönnum þeirra fyrir stuðninginn og þá miklu velvild sem þau sýna íþróttaiðkun barna og unglinga á Akranesi. Íþróttabandalagið mun strax hefjast handa við að skipuleggja með hvaða hætti stuðningurinn nýtist sem best til að bæta gæði og faglega vinnu í íþróttastarfinu og horfa þar sérstaklega á forvarnargildi íþróttaiðkunar fyrir ungmenni í bæjarfélaginu okkar.
Íþróttabandalag Akraness,
kt. 670169-2199 – reikningsnr. 0552-14-350180
Héraðssamband Vestfirðinga,
kt. 490500-3160 – reikningsnr. 0556-14-400730