Íþróttamaður ársins 2017: Valdís Þóra endaði í 9. sæti

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, kylfingur úr GR, er Íþróttamaður ársins 2017 en kjöri Samtaka íþróttafréttamanna var lýst í hófi í Hörpu í kvöld. Ólafía hlaut 422 stig af alls 520 stigum mögulegum. Valdís Þóra Jónsdóttir kylfingur úr Leyni frá Akranesi varð í 9. sæti í þessu kjöri og annar Skagamaður, Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr GKG, varð í 14. sæti.

Knattspyrnumennirnir Aron Einar Gunnarsson og Gylfi Þór Sigurðsson voru í næstu sætum á eftir. Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni varð í 9. sæti í þessu kjöri. Þetta er aðeins í þriðja sinn þar sem tveir kylfingar eru á topp 10 listanum í kjörinu á Íþróttamanni ársins.

Þetta er í fyrsta sinn í 62 ára sögu kjörsins að kylfingur hlýtur sæmdarheitið Íþróttamaður ársins en Ólafía Þórunn er sjötta konan sem verður fyrir valinu.

Valdís Þóra tekur hér við viðurkenningu á hófi Samtaka íþróttafréttamanna í Hörpunni. Mynd/skagafrettir.is
Valdís Þóra tekur hér við viðurkenningu á hófi Samtaka íþróttafréttamanna í Hörpunni. Mynd/skagafrettir.is
Valdís Þóra tekur hér við viðurkenningu á hófi Samtaka íþróttafréttamanna í Hörpunni. Mynd/skagafrettir.is

Karlalandslið Íslands í knattspyrnu var valið lið ársins og Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari karla í knattspyrnu, þjálfari ársins. Báðir aðilar hlutu fullt hús í kjörinu.

Hér eftir fer heildarniðurstaða kjörsins en mest var hægt að fá 540 stig í kjöri Íþróttamanns ársins.

Íþróttamaður ársins

1. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, golf – 422 stig
2. Aron Einar Gunnarsson, knattspyrna – 379
3. Gylfi Þór Sigurðsson, knattspyrna – 344
4. Aníta Hinriksdóttir, frjálsíþróttir – 172
5. Sara Björk Gunnarsdóttir, knattspyrna – 125
6. Guðjón Valur Sigurðsson, handbolti – 94
7. Jóhann Berg Guðmundsson, knattspyrna – 88
8. Hrafnhildur Lúthersdóttir, sund – 76
9. Valdís Þóra Jónsdóttir, golf – 72
10. Helgi Sveinsson, íþróttir fatlaðra – 47
11. Ásdís Hjálmsdóttir, frjálsar – 41
12. Júlían J. K. Jóhannsson, kraftlyftingar – 37
13. Alfreð Finnbogason, knattspyrna – 18
14. Birgir Leifur Hafþórsson, golf – 17
15. Martin Hermannsson, körfubolti – 16
16. Fanney Hauksdóttir, kraftlyftingar – 15
17. Þuríður Erla Helgadóttir, lyftingar – 4
18. Snorri Einarsson, skíðaganga – 2
19. Hannes Þór Halldórsson, knattspyrna – 1
20. Dagný Brynjarsdóttir, knattspyrna – 1

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem félagsmaður úr Íþróttabandalagi Akraness kemst á topp 10 listann. Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson endaði í sjötta sæti í þessu kjöri árið 2001 þegar hann keppti undir merkjum Leynis á Akranesi.

Árið 1956 fór kjörið á Íþróttamanni ársins fram í fyrsta sinn. Skagamaðurinn Ríkharður Jónsson varð í 7. sæti í því kjöri og braut þar með ísinn fyrir Skagamenn á þessum lista. Vilhjálmur Einarsson var sá fyrsti sem var kjörinn Íþróttamaður ársins.

Alls hafa 15 íþróttamenn úr röðum ÍA komist á topp 10 listann í þessu kjöri frá upphafi og alls 18 Skagamenn. Þrír þeirra kepptu undir merkjum annarra liða þegar þeir voru á topp 10 listanum. Þrír úr röðum ÍA hafa fjórum sinnum verið á þessum lista, Birgir Leifur Hafþórsson (golf), Ríkharður Jónsson (knattspyrna) og Ragnheiður Runólfsdóttir (sund). Birgir Leifur hefur alls sex sinnum verið á topp 10 listanum en tvívegis hefur hann verið í röðum GKG á þessum lista.

Eftirtaldir Skagamenn hafa verið á topp 10 listanum í kjörinu á Íþróttamanni ársins.

Birgir Leifur Hafþórsson, Leynir, golf (4/Leynir)(2/GKG)
Ríkharður Jónsson, ÍA , knattspyrna (4)
Ragnheiður Runólfsdóttir, ÍA, sund (4)
Pétur Pétursson, ÍA , knattspyrna (3)
Helgi Daníelsson, ÍA, knattspyrna (2)
Eyleifur Hafsteinsson, ÍA, knattspyrna (2)
Guðjón Guðmundsson, ÍA, sund (2)
Ingi Þór Jónsson, ÍA, sund (2)
Sigurður Jónsson, ÍA, knattspyrna (2)
Þórður Guðjónsson, Genk, knattspyrna (2)
Jón Alfreðsson, ÍA, knattspyrna (1)
Karl Þórðarson, ÍA , knattspyrna (1)
Sigurður Lárusson, ÍA, knattspyrna (1)
Arnar Gunnlaugsson, Nurnberg/ÍA/Sochaux, knattspyrna (1)
Ólafur Þórðarson, ÍA, knattspyrna (1)
Árni Gautur Arason, Rosenborg, knattspyrna (1)
Matthías Hallgrímsson, Valur, knattspyrna (1)
Valdís Þóra Jónsdóttir, Leynir, golf (1)

Skagamenn hafa tvívegis verið kjörnir Íþróttamenn ársins. Sundmaðurinn Guðjón Guðmundsson var sá fyrsti árið 1972 og sundkonan RagnheiðurRunólfsdóttir var kjörin íþróttamaður ársins árið 1991.

1956
7. Ríkharður Jónsson, ÍA (1), knattspyrna (1).

1957
10. Ríkharður Jónsson, ÍA (2) , knattspyrna (2).

1959
5. Helgi Daníelsson, ÍA (1) knattspyrna (3)
7. Ríkharður Jónsson, ÍA (3), knattspyrna (4)

1962
4. Ríkharður Jónsson, ÍA (4), knattspyrna (5)
10. Helgi Daníelsson, ÍA (2), knattspyrna (6)

1964
9. Eyleifur Hafsteinsson, ÍA (1), knattspyrna (7)

1965
6. Eyleifur Hafsteinsson, ÍA (2), knattspyrna (8)

1971
7. Guðjón Guðmundsson, ÍA (1), Sund (1)

1972
1. Guðjón Guðmundsson, ÍA (2), sund (2)

1975
10. Jón Alfreðsson, ÍA (1), knattspyrna (9)

1978
6. Pétur Pétursson, ÍA (1), knattspyrna (10)
7. Karl Þórðarson, ÍA (1) , knattspyrna (11)

1979
3. Pétur Pétursson, Feyenoord (2), knattspyrna (12)

1980
6. Ingi Þór Jónsson, ÍA (1), sund (3)
9. Pétur Pétursson, Feyenoord (3), knattspyrna (13)
10. Matthías Hallgrímsson, Valur (1), knattspyrna (14)

1982
9. Ingi Þór Jónsson, ÍA (2), sund (4)

1983
5. Sigurður Lárusson, ÍA (1), knattspyrna (15)

1986
8. Ragnheiður Runólfsdóttir, ÍA (1), sund (5)

1989
5. Ragnheiður Runólfsdóttir, ÍA (2), sund (6)

1990
9. Ragnheiður Runólfsdóttir, ÍA (3), sund (7)

1991
1. Ragnheiður Runólfsdóttir , ÍA (4), sund (8)

1993
3. Sigurður Jónsson, ÍA (1), knattspyrna (16)

1995
3. Sigurður Jónsson, ÍA (2), knattspyrna (17)
7. Arnar Gunnlaugsson, Nurnberg/ÍA/Sochaux (1), knattspyrna (18)

1996
5. Birgir Leifur Hafþórsson, Leynir (1), golf (1)
9. Ólafur Þórðarson, ÍA (1), knattspyrna (19)

1997
6. Birgir Leifur Hafþórsson, Leynir (2), golf (2)

1998
6. Þórður Guðjónsson , Genk (1), knattspyrna (20)

1999
10. Þórður Guðjónsson, Genk (2), knattspyrna (21)

2000
5. Birgir Leifur Hafþórsson, Leynir (3), golf (3)

2001
6. Birgir Leifur Hafþórsson, Leynir (4), golf (4)
8. Árni Gautur Arason, Rosenborg (1), knattspyrna (22)

2004
6. Birgir Leifur Hafþórsson, GKG (5), golf (5)

2006
4. Birgir Leifur Hafþórsson, GKG (6), golf (6)

2017

9. Valdís Þóra Jónsdóttir, Leynir (1), golf (7)