Tómstundaframlag Akraneskaupstaðar fyrir árið 2018 hækkar um 40% og tók breytingin gildi þann 1. janúar. Framlag kaupstaðarins til íþrótta – og tómstundaiðkunar barna verður 35.000 kr. fyrir eitt barn en þessi upphæð var 25.000 kr.
Tómstundaframlagið hækkar síðan um 25% fyrir annað barn og aftur um 25% við þriðja barn. Framlagið skiptist því svona:

- Foreldri með eitt barn, kr. 35.000
- Foreldri með tvö börn, kr. 39.375 per barn
- Foreldri með þrjú börn, kr. 44.479 per barn
Foreldrar skráð sig í íbúagátt Akraneskaupstaðar, www.ibuagatt.akranes.is og athugað stöðu/nýtingu tómstundaframlagsins. Látið verður vita þegar sú tenging verður tilbúin. Reglur um tómstundaframlag Akraneskaupstaðar má skoða hér.