Við undirritaðir tökum eindregið undir áskorun bæjarstjórnar Akraness á samgönguyfirvöld þess efnis að þegar verði brugðist við alvarlegu ástandi Vesturlandsvegar á Kjalarnesi og frekari fjármunum veitt til nauðsynlegra úrbóta varðandi tvöföldun vegarkaflans.
Jafnframt minnum við á áður sendar ábendingar um að afar brýnt sé að lagfæra gatnamótin af Vesturlandsvegi inn á Grundartangasvæðið með hliðsjón af umferðaröryggi.
![](https://skagafrettir.is/wp-content/uploads/2018/01/13055870_10206370315641975_898467617465303696_o-1132x670-1-1132x670.jpg)
Virðingarfyllst,
Forsvarsmenn atvinnufyrirtækja á Grundartanga
Þróunarfélag Grundartanga
Faxaflóahafnir
Norðurál
Elkem
Meitill – GT tækni
Stálsmiðjan Framtak
Lífland
Vélsmiðjan Hamar
Snókur verktakar