Valdís Þóra byrjar vel í Ástralíu – komst örugglega áfram

Valdís Þóra Jónsdóttir, íþróttamaður ársins á Akranesi 2017, er hálfnuð með sitt fyrsta mót í Ástralíu á sterkustu atvinnumótaröð Evrópu. Valdís komst örugglega í gegnum niðurskurðinn á Oates Vic mótinu eftir að hafa leikið gríðarlega vel á síðustu 12 holunum á öðrum keppnisdeginu. Valdís Þóra er í 30. sæti þegar þetta er skrifað á +1 samtals (75-72). Valdís Þóra hefur leik á þriðja keppnishringnum í aðfaranótt laugardags.

Mótið heitir Oates Vic og er það mjög sérstakt þar sem keppt er á Evrópumótaröð karla á sama velli á sama tíma. Verðlaunaféð er jafnhátt í karla – og kvennaflokki, og er það einsdæmi í atvinnugolfinu.

 

Keppt er á tveimur völlum, Beach og Creek. Valdís Þóra keppti á þessu móti í fyrra og endaði í 51. sæti en þetta er annað tímabil hennar á sterkustu mótaröð Evrópu.

Hér er skor keppenda uppfært á Oates Vic mótinu. 

Valdís Þóra Jónsdóttir mun keppa á fjórum mótum í Ástralíu og einu móti í Suður-Afríku á næstu vikum á LET Evrópumótaröðinni, sem er sterkasta mótaröð Evrópu.

Annað mót ársins hjá Valdísi er Actewagl Canberra Classic mótið sem fram fer á Royl Canberra vellinum. Það mót hefst 9. febrúar og eru leiknar 54 holur á þremur keppnisdögum.

Þriðja mótið í Ástralíu hjá Valdísi fer fram á Bonville vellinum og heitir það Australian Classic Bonville mótið. Það hefst 22. febrúar og því lýkur 25. febrúar þar sem leiknar verða 72 holur á fjórum dögum.

Fjórða mótið í þessari Ástralíu keppnistörn fer fram 1. -4. mars , NSW Womens Open. Það fer fram á Coffs vellinum.

Frá Ástralíu fer Valdís til Suður-Afríku þar sem keppt verður á Investec mótinu sem fram fer á Atlantic Beach Country vellinum. Það mót hefst 8. mars og því lýkur 10. mars.

Keppnisdagskrá LET Evrópumótaraðarinnar er enn í mótun og er ekki búið að gefa út keppnisdagskrá fyrir mótin sem fram fara í Evrópu.