Nýverið var áhugavert starf á Akranesi auglýst laust til umsóknar. Um er að ræða stöðu forstöðumanns íþróttamannvirkja.
Íþróttamannvirki á Akranesi eru Bjarnalaug, íþróttahúsið við Vesturgötu, íþróttahúsið á Jaðarsbökkum, sundlaugin Jaðarsbökkum, Akraneshöll og grasvellir.
Hér er sótt um starfið í gegnum heimasíðu Akraneskaupstaðar.
Umsóknum fylgi ítarleg starfsferilskrá ásamt greinargerð þar sem kemur fram ástæða umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi til starfsins.
Hörður Jóhannesson hefur gegnt þessu starfi í mörg ár en hann ætlar sér án efa að leika meira golf á næstu árum og snúa sér að öðrum skemmtilegum hlutum.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið
- Fagleg og fjárhagsleg ábyrgð á starfsemi íþróttamannvirkja Akraneskaupstaðar
- Rekstur og dagleg stjórnun íþróttamannvirkja
- Stjórnun starfsmannamála og ábyrgð á framkvæmd starfsmannastefnu
- Stefnumótun og gerð starfs- og fjárhagsáætlana
- Náið samstarf við Íþróttabandalag Akraness, skólasamfélagið og aðra sem sinna tómstundamálum
- Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
- Víðtæk þekking á málaflokknum
- Reynsla af rekstri og stjórnun æskileg
- Leiðtogahæfni og góð samskiptahæfni
- Faglegur metnaður
- Sjálfstæði í vinnubrögðum, skipulagshæfileikar og frumkvæði
- Umsóknarfrestur er til og með 25. febrúar 2018. Nánari upplýsingar um starfið veitir Valgerður Janusdóttir sviðsstjóri, [email protected].