Valdís Þóra heldur áfram að klífa upp heimslistann

Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni tekur risastökk á heimslista atvinnukylfinga sem uppfærður er vikulega. Valdís Þóra er í sæti nr. 313 og fer hún upp um 70 sæti frá því í síðustu viku. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR fer upp um eitt sæti en hún er í sæti nr. 172. Frá þessu er greint á golf.is.

Valdís og Ólafía hafa farið hratt upp heimslistann á undanförnum misserum. Sem dæmi má nefna að í júlí árið 2016 var Ólafía Þórunn í sæti nr. 714 og Valdís Þóra var í sæti nr. 731.

Staðan á heimslistanum er gríðarlega mikilvæg fyrir stöðu keppenda fyrir Ólympíuleikana 2020 í Tokýó í Japan.

Alls komast 60 kylfingar inn á Ólympíuleikana hjá báðum kynjum eða 120 keppendur samtals. Viðamikið kvótakerfi er í gangi varðandi þátttökurétt keppenda og er það gert til þess að sem flestar þjóðir eigi möguleika á að koma keppendum inn á ÓL.

Fimmtán efstu á heimslista karla og kvenna komast sjálfkrafa inn á ÓL 2020 en aðeins fjórir geta verið frá sama landi á þeim lista. Kvóti er á fjölda keppenda frá hverri þjóð og geta aðeins tveir að hámarki verið frá sama landi í sætum 16-59 á styrkleikalistanum.

Sem dæmi má nefna að á ÓL í Ríó de Janiero í Brasilíu árið 2016 komst Cathryn Bristow frá Nýja-Sjálandi inn á ÓL. Hún var í sæti nr. 446 þegar heimslistinn var uppfærður þann 11. júlí 2016 en það var síðasti möguleiki keppenda til þess að bæta stöðu sína á heimslistanum.

Á þeim tíma voru Ólafía Þórunn og Valdís Þóra Jónsdóttir í sætum nr. 714 og 731 á heimslistanum. Ólafía var því 268 sætum frá því að komast inn og Valdís Þóra var 285 sætum frá því að komast inn á ÓL.

Miðað við stöðuna núna þá væru Valdís Þóra og Ólafía Þórunn báðar í góðri stöðu þegar kemur að því að komast inn á ÓL 2020.