Leikmenn ÍA kynntu sér starfsemi Fjöliðjunnar

Fjöliðjan á Akranesi er kraftmikill vinnustaður þar sem boðið er upp á verndaða vinnu og endurhæfingu fyrir þá sem þess þurfa og leita eftir þjónustu. Leikmenn meistaraflokks ÍA í karlaflokki í knattspyrnu fóru á dögunum í heimsókn í Fjöliðjuna.

Markmiðið heimsóknarinnar var að kynna sér starfið sem þar fer fram og að sjálfsögðu gáfu leikmennnir starfsmönnum Fjöliðjunnar ÍA boli og peysur. Í Fjöliðjunni er að finna dyggustu stuðningsmenn ÍA og heimsóknin því kærkomin.

Fjölbreytt starfsemi er í Fjöliðjunni. Meðal verkefna er framleiðsla á borðtuskum. Tuskurnar eru með 7 litaþemum og er hugsunin sú að hvert svæði vinnustaðar og/eða heimilis eigi sinn lit, þ.e.a.s. ein fyrir WC og ein fyrir eldhús o.s.frv. Tuskurnar eru úr 100% bómull og eru 35×70 cm að stærð. Einnig fer þar fram endurvinnsla dósa og telja starfsmenn Fjöliðjunnar umbúðirnar. Á hverju ári tekur starfsfólk Fjöliðjunnar á móti og telur á þriðju milljón umbúða.

Fjöliðjan er staðsett á Dalbraut 10 og er hún opin alla virka daga frá þvi miður er vitlaus grein. Opið er frá 08:00 til 11:45. 13:00 til 15:30.

Það eru allir velkomnir í heimsókn í Fjöliðjuna.

Frá heimsókn ÍA í Fjöliðjuna. Mynd/ÍA.