Valgarður í efsta sæti hjá Samfylkingunni – Gerður og Bára nýjar á lista

Valgarður Lyngdal Jónsson bæjarfulltrúi verður oddviti framboðslista Samfylkingarinnar í bæjarstjórnarkosningunum í vor. Tveir nýir frambjóðendur eru í 2. og 3. sæti listans, þær Gerður Jóhannsdóttir héraðsskjalavörður og Bára Daðadóttir félagsráðgjafi.

Næstu þrjú sæti þar á eftir skipa þau Kristinn Hallur Sveinsson landfræðingur, Guðjón Viðar Guðjónsson rafvirki og Ása Katrín Bjarnadóttir nemi í umhverfisskipulagi.

Neðri röð frá vinstri: Ása Katrín Bjarnadóttir, Kristinn Hallur Sveinsson, Bára Daðadóttir, Valgarður Jónsson, Gerður Jóhannsdóttir.
Miðröð frá vinstri: Ívar Orri Kristjánsson, Ragnheiður Stefánsdóttir, Uchechukwu Eze, Björn Guðmundsson, Guðríður Haraldsdóttir, Guðríður Sigurjónsdóttir, Margrét Helga Ísaksen, Þráinn Ólafsson.
Efst frá vinstri: Ingibjörg Valdimarsdóttir, Guðjón Viðar Guðjónsson, Gunnhildur Björnsdóttir. Á myndina vantar Guðmund Valsson og Pétur Inga Jónsson.

Ingibjörg Valdimarsdóttir, sem verið hefur oddviti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn síðastliðið kjörtímabil, stígur til hliðar og situr í 18. sæti listans.

Framboðslisti Samfylkingarinnar í kosningum til bæjarstjórnar Akraness 2018:

1. Valgarður Lyngdal Jónsson – bæjarfulltrúi og grunnskólakennari
2. Gerður Jóhannsdóttir – héraðsskjalavörður
3. Bára Daðadóttir – félagsráðgjafi
4. Kristinn Hallur Sveinsson – landfræðingur
5. Guðjón Viðar Guðjónsson – rafvirki
6. Ása Katrín Bjarnadóttir – nemi í umhverfisskipulagi
7. Guðríður Sigurjónsdóttir – leikskólakennari
8. Uchechukwu Eze – verkamaður
9. Björn Guðmundsson – húsasmiður
10. Margrét Helga Ísaksen – háskólanemi
11. Pétur Ingi Jónsson – lífeindafræðingur
12. Ragnheiður Stefánsdóttir – sjúkraliði
13. Guðríður Haraldsdóttir – prófarkalesari
14. Ívar Orri Kristjánsson – tómstunda- og félagsmálafræðingur
15. Gunnhildur Björnsdóttir – grunnskólakennari
16. Guðmundur Valsson – mælingaverkfræðingur
17. Þráinn Ólafsson – slökkviliðsstjóri
18. Ingibjörg Valdimarsdóttir – bæjarfulltrúi og framkvæmdastjóri