Elsa Lára leiðir lista Framsóknar og frjálsra

Elsa Lára Arnardóttir skrifstofustjóri leiðir lista Framsóknar og frjálsra í bæjarstjórnarkosningunum í vor á Akranesi. Ragnar Baldvin Sæmundsson verslunarmaður er í 2. sæti og Liv Åse Skarstad húsmóðir í 3. sæti.

Næstu þrjú sæti þar á eftir skipa þau Karitas Jónsdóttir verkefnastjóri, Ole Jakob Volden húsasmiður og Helga Kristín Björgólfsdóttir grunnskólakennari.

Frá vinstri: Ole Jakob Volden, Karitas Jónsdóttir, Liv Åse Skarstad, Elsa Lára Arnardóttir, Ragnar Baldvin Sæmundsson og Helga Kristín Björgólfsdóttir.

Ingibjörg Pálmadóttir sem verið hefur oddviti Framsóknar í bæjarstjórn undanfarið kjörtímabil, skipar nú 18. sæti listans.

Framboðslisti Framsóknar og frjálsra í kosningum til bæjarstjórnar Akraness 2018:

  1. Elsa Lára Arnardóttir – skrifstofustjóri
  2. Ragnar Baldvin Sæmundsson – verslunarmaður
  3. Liv Åse Skarstad – húsmóðir
  4. Karitas Jónsdóttir – verkefnastjóri
  5. Ole Jakob Volden – húsasmiður
  6. Helga Kristín Björgólfsdóttir – grunnskólakennari
  7. Alma Dögg Sigurvinsdóttir – BA í stjórnmálafræði
  8. Ellert Jón Björnsson – viðskiptastjóri
  9. Hilmar Sigvaldason – ferðamálafrömuður
  10. Anna Þóra Þorgilsdóttir – hjúkrunarfræðingur
  11. Olga Katrín Davíðsdóttir Skarstad – nemi
  12. Þröstur Karlsson – sjómaður
  13. Sigurður Oddsson – vélvirkjanemi
  14. Maren Rós Steindórsdóttir – verslunarmaður
  15. Axel Guðni Sigurðsson – rafvirki
  16. Guðmundur Páll Jónsson – forstöðumaður
  17. Björk Elva Jónasdóttir – hjúkrunarfræðingur
  18. Ingibjörg Pálmadóttir – hjúkrunarfræðingur og fyrrverandi ráðherra