Rúmlega 1500 hafa tekið þátt í skoðanakönnun á skagafrettir.is. Spurningin er einföld. Hvaða flokk ætlar þú að kjósa í bæjarstjórnarkosningunum á Akranesi 26. maí 2018? Alls eru fjórir valkostir í þessari könnun.
Kosningakerfið á skagafrettir.is er með þeim hætti að aðeins er eitt atkvæði talið frá hverri IP tölu. Þeir sem kjósa margoft á hverjum degi eru að gera það án árangurs.
![](https://skagafrettir.is/wp-content/uploads/2018/05/Screen-Shot-2018-05-08-at-9.11.35-PM-1132x670.png)
Framsókn og frjálsir eru með mesta fylgið eða 32,5 %, þar á eftir kemur listi Samfylkingar með tæðlega 29% fylgi, Sjálfstæðiflokkurinn er með 27,2% og Miðflokkurinn er með 11,5%.