Skagamaðurinn Björn Bergmann fer á HM í Rússlandi

Skagamaðurinn Björn Bergmann Sigurðarson er í 23 manna leikmannahóp Íslands sem keppir á Heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í sumar. Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari Íslands tilkynnti hópinn í dag.

Skagamaðurinn Arnór Smárason er í 35 manna hóp og er hann til taks ef gera þarf breytingar á hópnum fyrir HM í Rússlandi.

Hópurinn er þannig skipaður:



 

Albert Guðmundsson
Aron Einar Gunnarsson
Samúel Kári Friðjónsson
Rúrik Gíslason
Frederik Schram
Ragnar Sigurðsson
Ólafur Ingi Skúlason
Hólmar Örn Eyjólfsson
Jón Daði Böðvarsson
Hörður Björgvin Magnússon
Rúnar Alex Rúnarsson
Gylfi Þór Sigurðsson
Emil Hallfreðsson
Sverrir Ingi Ingason
Arnór Ingvi Traustason
Björn Bergmann Sigurðarson
Birkir Már Sævarsson
Birkir Bjarnason
Ari Freyr Skúlason
Alfreð Finnbogason
Kári Árnason
Jóhann Berg Guðmundsson
Hannes Þór Halldórsson