Fjórir flokkar bjóða fram til bæjarstjórnarkosninga á Akranesi 2018. Kosningin hófst í Brekkubæjarskóla kl. 9:00 í morgun, laugardaginn 25. maí og lýkur kjörfundinum kl. 22:00.
Skagafréttir settu upp í vikunni skoðanakönnun á fréttavefnum. Alls bárust 1.351 atkvæði.
Alls eru á kjörskrá á Akranesi 5.183 einstaklingar, þar af 2.638 karlar og 2.545 konur.
Spurningin var eftirfarandi: Hvar mun þitt ætkvæði enda í bæjarstjórnarkosningunum 2018?
Þrír flokkar af þssum fjórum skipta með sér tæplega 80% atkvæða. Rúmlega 8% er enn ekki búnir að gera upp hug sinn og 3,6% ætla að skila auðu.
Framsókn og frjálsir fengu tæplega 30% atkvæða í þessari könnun, Sjálfstæðisflokkurinn 26,5% og Samfylkingin fékk 23,6% – og Miðflokkurinn er með tæp 9% í þessari könnun.
Framsókn og frjálsir: 397 atkvæði / 29,4 %
Sjálfstæðisflokkur : 356 atkvæði / 26,5%
Samfylkingin: 319 atkvæði / 23,6%
Miðflokkur: 120 atkvæði / 8,9%
Óákveðinn: 111 atkvæði / 8,2%
Kýs en skila auðu: 48 atkvæði / 3,6%
Skipting í kjördeildir á Akranesi er sem hér segir:
Kjördeild I – Akralundur til og með Grundartúni
Kjördeild II – Hagaflöt til og með Reynigrund
Kjördeild III – Sandabraut til og með Þjóðvegi
Auglýsing