Það styttist í fyrsta leik Íslands á HM í knattspyrnu karla, þar sem Skagamaðurinn Björn Bergmann Sigurðarson, er á meðal leikmanna.
Félagi hans í landsliðinu, markvörðurinn Hannes Þór Halldórsson, er margt til lista lagt. Það má sjá í þessari auglýsingu frá Coca-Cola – sem landsliðsmarkvörðurinn leikstýrði.
![](https://skagafrettir.is/wp-content/uploads/2018/06/Screen-Shot-2018-06-12-at-1.55.24-PM-1132x670.png)
Það tók 7 mánuði að setja þetta allt saman og útkoman er listilega vel gerð auglýsing sem kveikir neistann í þeim sem halda með Íslendingum á HM.
Tökustaðirnir voru margir og má þar nefna San Fransisco, Reykjavík, Hveragerði, Sandgerði, á Ísafirði og Akureyri.
Auglýsing