Valdís Þóra lék vel í Tékklandi – keppir næst í Taílandi

Atvinnukylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir, íþróttamaður Akraness 2017, endaði í 5.-9. sæti á AXA mótinu sem fram fer í Tékklandi.

Mótið er hluti af LET Access mótaröðinni sem er næst sterkasta atvinnumótaröð Evrópu í kvennaflokki.

Valdís Þóra lék hringina þrjá á 73-67-70 eða 6 höggum undir pari. Sigurvegarinn Carmen Alonso frá Spáni sigraði á þessu móti á -11 samtals.

Valdís heldur nú til Taílands þar sem hún mun keppa á LET Evrópumótaröðinni sem er sterkasta atvinnumótaröð Evrópu.

Auglýsing