Leikmenn Kára náðu frábærum úrslitum í gær þegar liðið lagði Völsung frá Húsavík 4-2 í 2. deild karla. Leikurinn fór fram í Akraneshöllinni og með sigrinum náði Kári að þoka sér upp í 2. sæti deildarinnar, við hlið Þróttar úr Vogum.
Páll Sindri Einarsson skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Kára úr vítaspyrnu eftir aðeins tvær mínútur. Staðan í hálfleik var 1-0. Gylfi Brynjar Stefánsson og Arnar Freyr Sigurðsson bættu við mörkum í upphafi síðari hálfleiks.
Húsvíkingurinn Bjarki Baldvinsson minnkaði muninn á 83. mínútu. Helgi Jónsson bætti við fjórða marki Kára í uppbótartíma áður en Ásgeir Kristjánsson skoraði fyrir Völsung rétt fyrir leikslok. Lokatölur 4-2.
Auglýsing