Afreksfólk í siglinum við æfingar á Akranesi

Það er mikið um að vera í Akraneshöfn þessa dagana. Siglingasamband Íslands stendur fyrir æfingabúðum í kænusiglinum hér á Akranesi vikuna 1.-8. júli. Keppnishópar víðsvegar af landinu eru hér samankomnir. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Akranes verður fyrir valinu en árið 2015 voru samskonar æfingabúðir á Akranesi.

Í ár eru þáttakendur frá Nökkva á Akureyri, Þyt í Hafnarfirði og Brokey í Reykjavík. Bátarnir eru af gerðinni Optimist, Laser og Topper-Topaz, en þeir síðast nefndu voru notaðir á námskeiði sem Sigurfari hélt sumarið 2018.

Guðmundur Benediktsson formaður Sigurfara, siglingafélags Akraness, segir að þessi viðburður sé mikill fengur fyrir bæjarfélagið og Sigurfara.

„Við þessi tækifæri eru gjarnan fengnir reyndir þjálfarar úr hinum alþjóðlega siglingaheimi. Í ár kemur Flor Cerutti, sem starfar við siglingaþjálfun á Spáni. Hún var fulltrúi Paraguay á ólympíuleikunum í Peking 2012 og var þá fyrsti keppandinn frá því landi til að taka þátt í siglingum á Ólympíuleikum.

Svona viðburður með þrautreyndu fólki í faginu er mikill fengur bæði bæjarfélaginu og Sigurfara. Nú hefur félagið eignast báta af gerðinni Optimist og hefur góða von um fasta aðstöðu. Þjálfaraskortur hefur háð fleiri félögum en okkar, en siglingabúðirnar munu væntanlega verða til að bæta úr því. Það verður því líflegt við höfnina og Langasand næstu vikuna, þar sem fullt af litlum seglum flögra um. Siglingabúðunum lýkur svo á laugardaginn með siglingakeppni,“ sagði Guðmundur.

Auglýsing