Valdís Þóra og Birgir Leifur keppa fyrir Ísland á EM atvinnukylfinga

Fjórir íslenskir atvinnukylfingar eru á meðal keppenda á Evrópumóti í liðakeppni atvinnukylfinga sem fram fer á Gleneagles vellinum í Skotlandi dagana 8.-12. ágúst. Tveir af þessum keppendum eru frá Akranesi, Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni og Birgir Leifur Hafþórsson, íþróttastjóri Leynis.

Keppt er um Evrópumeistaratitla í fjölmörgum íþróttagreinum í Glasgow og er golfmótið hluti af þeirri keppni. EM í hjólreiðum, fimleikum, róðri og þríþraut fer fram í Glasgow á þessum tíma einnig. Á sama tíma fer fram EM í frjálsíþróttum í Berlín.

Nánar um mótið hér:

Verðlaunaféð skiptist jafnt niður í karla- og kvennaflokki. Keppt er í liðakeppni í karla – og kvennaflokki og einnig verður leikin 18 holu keppni með blönduðum liðum.

Alls eru 16 þjóðir sem taka þátt og er hvert lið skipað tveimur leikmönnum. Axel Bóasson (GK) og Birgir Leifur Hafþórsson (GKG) verða saman í liði. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir (GR) og Valdís Þóra Jónsdóttir (GL) verða saman í liði.

Hver þjóð má að hámarki vera með þrjú lið í hverri keppni. Bretar eru með þrjú lið í bæði karla – og kvennaflokki, Svíar koma þar næstir með tvö karlalið og þrjú í kvennaflokki.

Eins og áður segir er keppt á Gleneagles vellinum þar sem að Ryderkeppnin fór fram árið 2014. Solheim bikarinn fer fram á þessum velli árið 2019.

Ólafía Þórunn segir að hún sé spennt fyrir því að fá tækifæri að leika fyrir Ísland á þessu móti.

„Ísland hefur náð frábærum árangri í mörgum íþróttagreinum á heimsvísu að undanförnu. Markmiðið er að koma golfíþróttinni á kortið einnig. Þetta mót lofar góðu, skemmtilegt keppnisfyrirkomulag, og er upphaf að einhverju enn stærra,“ sagði Ólafía Þórunn m.a í viðtali við skipuleggjendur mótsins.

Keppnisfyrirkomulagið er holukeppni á milli liða sem eru skipuð tveimur leikmönnum. Alls eru 16 lið sem keppa og er þeim skipt upp í fjóra riðla.

Hvert lið leikur þrjá leiki í riðlinum og þar sem betra skor hjá liðinu telur á hverri holu (fjórbolti/fourball)

2 stig fást fyrir sigur í leik og 1 stig fyrir jafntefli.

Efstu liðin úr hverjum riðli komast í undanúrslit.