Skagamennirnir Guðmundur Kári Þorgrímsson, Helgi Laxdal Aðalgeirsson og Logi Örn Axel Ingvarsson eru í landsliðshóp Íslands sem keppir á Evrópumótinu í hópfimleikum. Þeir keppa allir fyrir Stjörnuna en hófu ferilinn með Fimleikafélagi Akraness, ÍA.
Evrópumótið fer fram í Lissabon í Portúgal 17.-20. október 2018 og keppa Guðmundur, Helgi og Logi í blönduðu liði fullorðinna.
![](https://skagafrettir.is/wp-content/uploads/2018/08/blandadfullordins-1132x670.jpg)
Mikil samkeppni var um sæti í landsliðshópunum. Alls mættu tæplega 200 iðkendur á úrtökuæfingarnar í byrjun verkefnis, 110 iðkendur frá 8 félögum komust í úrvalshópa.
Alls eru 69 iðkendur sem komust í landsliðshóp sem hefur æft saman síðan í lok júlí.
Yfirþjálfarar landsliða og landsliðsþjálfarar hafa nú valið í landslið sem samanstanda af 14 manna hópum en 12 munu keppa í Portúgal í október.
![](http://localhost:8888/skagafrettir/wp-content/uploads/2017/12/14556600_1321995841152560_1669527585001516703_o-683x1024.jpg)
![](http://localhost:8888/skagafrettir/wp-content/uploads/2017/12/13307462_1352472194769497_212873048781860505_n.jpg)
![](http://localhost:8888/skagafrettir/wp-content/uploads/2018/08/17157606_684170415077364_5617374875124701007_o-1024x1024.jpg)
Auglýsing