Franklin kemur og þjálfar körfuboltaliðin á Skaganum

Það eru sviptingar í þjálfaramálum ÍA í körfubolta karla. Bandaríkjamaðurinn Chaz Franklin kemur til landsins í byrjun næstu viku.

Eins og greint var frá nýverið var búið að komast að samkomulagi við Jermelle Fraser en það gekk ekki eftir.

Chaz Franklin er 37 ára gamall og kemur frá borginni Philadelphia. Franklin er með mikla reynslu sem leikmaður og þjálfari – og hefur hann þjálfað víða í heiminum.

Forráðamenn ÍA binda miklar vonir við komu Franklin sem mun þjálfa yngri flokka félagasins ásamt mfl. karla sem leikur í 2. deild á næsta tímabili.

Það stefnir í skemmtilega 2. deild í vetur, alls eru 10 lið skráð til leiks og öll hér á SV-horninu (KV, Ármann, Álftanes, Leiknir, Reynir S, Stálúlfur, ÍA, Njarðvík b, KR b, Valur b).

Gert er ráð fyrir að mótið byrji 5. okt og það verði spilaðir samtals 18 leikir.

 

 

http://localhost:8888/skagafrettir/2018/08/15/jermelle-fraser-verdur-naesti-thjalfari-ia-i-korfunni/

 

Auglýsing