Hvenær verður hætt að rukka í göngin? – svarið er í þessari frétt!

Það eru margir sem hafa áhuga á því að vita hvenær gjaldtöku verður hætt í Hvalfjarðargöngin af hálfu Spalar.

Á heimasíðu fyrirtækisins er sagt að innheimtu veggjalda verði hætt haustið 2018.

Gylfi Þórðarson framkvæmdastjóri Spalar segir að nákvæm dagsetning liggi ekki fyrir – og engin sérstök ástæða er fyrir því.

Skagafrettir.is sendi fyrirspurn á skrifstofu Spalar og var henni svarað um hæl af framkvæmdastjóranum.

Spurningin frá skagafrettir.is var eftirfarandi: „Það eru margir sem hafa áhuga á því að vita hvenær gjaldtöku verður hætt í Hvalfjarðargöngin af hálfu Spalar. Í haust er mjög vítt hugtak, er hægt að fá nánari dagsetningu eða er hún ekki klár?

Svarið frá Gylfa er hér fyrir neðan:

„Ég sagði á aðalfundi í mars að það stefndi í það þá að þetta yrði einhvern tímann síðari hluta september og það stendur ennþá ef ekkert óvænt kemur upp á,“ segir Gylfi í svari sínu í dag.

Á heimasíðu Spalar er vakin athygli á því að allar inneignir verði endurgreiddar.

„Að gefnu tilefni skal það ítrekað enn og aftur að viðskiptavinir Spalar fá að sjálfsögðu greidda þá fjármuni sem þeir kunna að eiga inni á áskriftarreikningum sínum hjá félaginu þegar hætt verður að innheimta veggjöld haustið 2018.

Spölur mun líka endurgreiða afsláttarmiða sem viðskiptavinir kunna að eiga í fórum sínum þegar gjaldheimtu lýkur og endurgreiða skilagjald veglykla.

Fyrir hefur legið lögfest í meira en tvo áratugi að rekstrartíma Spalar í núverandi mynd lyki á árinu 2018 og að félagið myndi þá afhenda ríkinu Hvalfjarðargöngin skuldlaus.

Rekstri ganganna verður fram haldið í núverandi mynd þar til ríkið eignast mannvirkið í haust.

Allt sem áskrifendur og aðrir viðskiptavinir eiga inni verður endurgreitt, hvort sem eru fjármunir á áskriftarreikningum eða ónotaðir afsláttarmiðar. Breytir engu hvenær áskriftarferðir eru greiddar fyrir fram eða keyptir afsláttarmiðar á þeim tíma sem eftir lifir af rekstrartíma Spalar,“ segir í frétt á heimasíðu Spalar.

Auglýsing