Berglind Helga nýr persónuverndarfulltrúi Akraneskaupstaðar

Berglind Helga Jóhannsdóttir hefur verið ráðin persónuverndarfulltrúi Akraneskaupstaðar. Þetta kemur fram á vef Akraneskaupstaðar.

Staðan var auglýst í júlí síðastliðnum og voru umsækjendur 12 talsins en þrír umsækjendur drógu umsókn sína til baka.

Berglind Helga lauk B.Sc í lögfræði frá Syddansk Universitet í Óðinsvéum og síðar meistaranámi í lögfræði frá Háskólanum á Bifröst.

Hún hefur fjölbreytta reynslu af lögfræðistörfum, m.a. á lögfræðisviði Landsbankans og sem ritari fagráðs bankans. Hún gengdi einnig starfi löglærðs fulltrúa hjá Sýslumanninum á Akranesi, sem síðar varð Sýslumaðurinn á Vesturlandi.

Berglind Helga hefur störf þann 10. september.

Auglýsing