Dansk/íslenski Skagmaðurinn Jóhann Thor Haahr Hansen leitar eftir stuðningi Skagamanna í ljósmyndakeppni sem hann tekur þátt í.
Ljósmyndin er tekin í Ástralíu þar sem að Jóhann stundar nám í fjölmiðlafræðum.
Myndin sem Jóhann tók við Twelve Apostles er ein af 12 myndum sem komust í úrslit í þessari keppni.
Það er að miklu að keppa þar sem að sigurvegarinn fær ferð til Fijí-eyja.
Þú getur aðstoðað Jóhann með því að smella á Instagram hlekkinn hér fyrir neðan og hent í eitt „hjarta“
Þess ber að geta að Jóhann er nátengdur ristjórn Skagafrétta. Jóhann er sonur Eyrúnar Ingu Þórólfsdóttur, sem er jú stóra systir ritstjóra Skagafrétta.
Auglýsing