Guðjón Þórðarson á ný í þjálfun – tekur við NSÍ Runavik í Færeyjum

Skagamaðurinn Guðjón Þórðar­son verður næsti þjálfari færeyska knattspyrnuliðsins NSÍ Runa­vík í Fær­eyj­um.

Guðjón skrifaði undir tveggja ára samning við félagið sem varð í öðru sæti í færeysku deildarkeppninni á síðustu leiktíð.

Guðjón er 63 ára gamall og hann þjálfaði síðast á Íslandi árið 2012.

NSÍ er frá Runa­vík, 4.000 manna bæ á Aust­ur­ey, en liðið hafnaði í öðru sæti fær­eysku úr­vals­deild­ar­inn­ar í ár, 18 stig­um á eft­ir meist­araliði HB. NSÍ hef­ur einu sinni orðið fær­eysk­ur meist­ari, árið 2007, en það varð bikar­meist­ari í þriðja sinn 2017.

Guðjón Þórðarson er einn reyndasti þjálfari Íslands. Undir hans stjórn varð ÍA þrívegis Íslandsmeistari í karlaflokki, 1992, 1993 og 1996. KA frá Akureyri varð Íslandsmeistari undir stjórn Guðjóns árið 1989. Bikarmeistaratitlarnir eru fjórir hjá Guðjóni. ÍA varð bikarmeistari 1993 og 1996. Árið 1994 og 1995 gerði hann KR að bikarmeisturum.

Guðjón var þjálfari íslenska landsliðsins á árunum 1997-1999. Hann tók síðan við enska liðinu Stoke City og þjálfaði einnig Barnsley, Notts County og Crewe á Englandi. Hér á landi hef­ur hann m.a þjálfað ÍA, KA, Kefla­vík og Grinda­vík.

Auglýsing