Arnór fetar í fótspor móður sinnar – er nr. 81 úr röðum ÍA í A-landsliði

Í kvöld leikur Ísland gegn Belgíu á útivelli í Þjóðadeild karlalandsliða í knattspyrnu. Skagamaðurinn Arnór Sigurðsson, leikmaður CSKA Moskvu, er í leikmannahópnum. Leikurinn hefst kl. 19.45 í kvöld.

Þetta er í fyrsta sinn sem hinn 19 ára gamli leikmaður fær tækifæri að leika með A-landsliði Íslands.

Skagamenn eiga stóran hóp leikmanna sem hafa leikið með A-landsliði karla og kvenna í gegnum tíðina. Jón Gunnlaugsson, sagnaritari og fyrrum leikmaður ÍA og landsliðsins, á ógrynni af skemmtilegri tölfræði um slíka hluti.

Í þeirri tölfræði kemur m.a. fram að  Arnór er sá 81. í röðinni frá upphafi sem kemur úr röðum ÍA og leikur með A-landsliði.

Alls hafa 62 karlar frá ÍA leikið með A-landsliðinu og 17 konur frá ÍA hafa leikið með A-landslið Íslands.

Arnór fetar þar með í fótspor móður sinnar, Margrétar Ákadóttur, sem lék með A-landsliði kvenna á sínum tíma. Faðir Arnórs, Sigurður Sigursteinsson, lék með bæði með U-17 ára og U-19 ára landsliði Íslands á sínum tíma.

Leikmenn ÍA sem hafa leikið A-landsleik. 

Karlar:
Ríkharður Jónsson.
Þórður Þórðarson.
Dagbjartur Hannesson.
Guðjón Finnbogason.
Pétur Georgsson.
Sveinn Teitsson.
Halldór Sigurbjörnsson.
Kristinn Gunnlaugsson.
Þórður Jónsson.
Helgi Daníelsson.
Helgi Björgvinsson.
Jón Leósson.
Ingvar Elísson.
Eyleifur Hafsteinsson.
Einar Guðleifsson.
Björn Lárusson.
Matthías Hallgrímsson.
Haraldur Sturlaugsson
Guðjón Guðmundsson.
Hörður K. Jóhannesson.
Jón Alfreðsson.
Þröstur Stefánsson.
Karl Þórðarson.
Teitur Þórðarson.
Árni Sveinsson.
Guðjón Þórðarson.
Jón Gunnlaugsson.
Sigurður Halldórsson.
Pétur Pétursson.
Kristinn Björnsson.
Heimir Guðmundsson.
Bjarni Sigurðsson.
Kristján B. Olgeirsson.
Ólafur Þórðarson.
Sigurður Jónsson.
Sigurður Lárusson.
Sveinbjörn Hákonarson.
Alexander Högnason.
Haraldur Ingólfsson.
Bjarki B. Gunnlaugsson.
Arnar B. Gunnlaugsson.
Árni Gautur Arason.
Gunnlaugur Jónsson.
Stefán Þór Þórðarson.
Þórður Guðjónsson.
Jóhannes Þór Harðarson.
Kristján Finnbogason.
Sigursteinn Gíslason.
Bjarni Guðjónsson.
Ólafur Adolfsson.
Þórður Þórðarson.
Grétar Rafn Steinsson.
Jóhannes K. Guðjónsson.
Ólafur Þór Gunnarsson.
Steinar Adolfsson.
Garðar B. Gunnlaugsson.
Baldur Aðalsteinsson.
Arnór Smárason.
Heimir Einarsson.
Björn B. Sigurðarson.
Tryggvi H. Haraldsson.
Arnór Sigurðsson.

Konur:
Kristín Aðalsteinsdóttir.
Laufey Sigurðardóttir.
Ragnheiður Jónasdóttir.
Halldóra Gylfadóttir.
Karítas Jónsdóttir.
Ragna Lóa Stefánsdóttir.
Vala Úlfljótsdóttir.
Vanda Sigurgeirsdóttir.
Sigurlín Jónsdóttir.
Magnea Guðlaugsdóttir.
Guðlaug Jónsdóttir.
Jónína Víglundsdóttir.
Steindóra Steinsdóttir.
Helena Ólafsdóttir.
Ingibjörg H. Ólafsdóttir.
Laufey Jóhannsdóttir
Margrét Ákadóttir.
Helga Sjöfn Jóhannesdóttir
Hallbera G. Gísladóttir.

 

http://localhost:8888/skagafrettir/2017/02/16/tryggvi-og-albert-their-einu-sem-eiga-a-landslids-foreldra/

 

Auglýsing



Auglýsing