Konur og karlar eru hnífjöfn í kjörinu á íþróttamanni Akraness

Auglýsing



Eins og fram kom í gær þá var Valdís Þóra Jónsdóttir kjörin íþróttamaður Akraness í sjöunda sinn. Frá því að þessi kosning fór fyrst fram árið 1965 þá hafa jafnmargar konur og karlar fengið þessa viðurkenningu.

Alls hafa konur verið kjörnar 22 sinnum en karlar í 22 skipti.

Fyrst var kosið árið 1965 en frá árinu 1977 hefur kjörið farið fram árlega. Ríkharður Jónsson var sá fyrsti sem var kjörinn en það liðu sjö ár þar til kosið var á ný.

Sundíþróttin er með 21 titlil á þessu sviði en golfíþróttin er með 11 titla og í þriðja sæti eru fulltrúar knattspyrnunni með 10 titla.

Íþróttamenn Akraness frá upphafi:

2018: Valdís Þóra Jónsdóttir (7) golf (11).
2017: Valdís Þóra Jónsdóttir, (6) golf (10).
2016: Valdís Þóra Jónsdóttir, (5) golf (9).
2015: Ágúst Júlíusson, (2) sund (21)
2014: Ágúst Júlíusson, (1) sund (20).
2013: Jakob Svavar Sigurðsson, (1) hestamennska (1).
2012: Inga Elín Cryer, (2) sund (19).
2011: Inga Elín Cryer, (1) sund (18).
2010: Valdís Þóra Jónsdóttir, (4) golf (8).
2009: Valdís Þóra Jónsdóttir, (3)golf (7).
2008: Valdís Þóra Jónsdóttir, (2) golf (6).
2007: Valdís Þóra Jónsdóttir, (1) golf (5).
2006: Eydís Líndal Finnbogadóttir, (1) karate.
2005: Pálmi Haraldsson, (1) knattspyrna (10).
2004: Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, (6) sund (17).
2003: Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, (5) sund (16).
2002: Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, (4) sund (15).
2001: Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, (3) sund (14).
2000: Birgir Leifur Hafþórsson, (3) golf (4).
1999: Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, (2) sund (13).
1998: Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, (1) sund (12).
1997: Þórður Emil Ólafsson, (1) golf (3).
1996: Birgir Leifur Hafþórsson, (2) golf (2).
1995: Sigurður Jónsson, (2) knattspyrna (9).
1994: Sigursteinn Gíslason, (1) knattspyrna (8).
1993: Sigurður Jónsson, (1) knattspyrna (7).
1992: Birgir Leifur Hafþórsson, (1) golf (1).
1991: Ragnheiður Runólfsdóttir, (6) sund (11), (Íþróttamaður ársins á Íslandi).
1990: Ragnheiður Runólfsdóttir, (5) sund (10).
1989: Ragnheiður Runólfsdóttir, (4) sund (9).
1988: Ragnheiður Runólfsdóttir, (3) sund (8).
1987: Ólafur Þórðarson, (1) knattspyrna (6).
1986: Ragnheiður Runólfsdóttir, (2) sund (7).
1985: Ragnheiður Runólfsdóttir, (1) sund (6).
1984: Bjarni Sigurðsson, (1) knattspyrna (5).
1983: Sigurður Lárusson, (1) knattspyrna (4).
1982: Ingi Þór Jónsson, (2) sund (5).
1981: Ingólfur Gissurarson, (2) sund (4).
1980: Ingi Þór Jónsson, (1) sund (3).
1979: Ingólfur Gissurarson, (1) sund (2).
1978: Karl Þórðarson, (1) knattspyrna (3).
1977: Jóhannes Guðjónsson, (1) badminton (1) / knattspyrna (2).
1972: Guðjón Guðmundsson, (1) sund (1), (Íþróttamaður ársins á Íslandi).
1965: Ríkharður Jónsson, (1) knattspyrna (1).

Auglýsing



Auglýsing