Óánægja hjá bæjarstjórn með ákvörðun ráðherra um hjúkrunarrými á Höfða

Auglýsing



Elsa Lára Arnardóttir, formaður bæjarráðs Akraness, er ekki sátt við þá ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherrra að synja Akranesbæ um fjölgun hjúkrunarrýma á dvalarheimilinu Höfða.

Elsa Lára er einnig stjórnarformaður Höfða og hún ræddi þessi mál í fréttum Stöðvar 2 í gær. Viðtalið má sjá hér fyrir neðan.

Elsa Lára segir að mikil óánægja sé innan bæjarstjórnar – þar sem að hjúkrunarrýmum hafi fækkað um alls átta á nokkrum árum þrátt fyrir mikla fjölgun bæjarbúa.

Auglýsing



Auglýsing