Auglýsing
Skagamaðurinn Gísli Gíslason fékk í gær heimild hjá stjórn Faxaflóahafna til þess að ganga frá smíðasamningi á nýjum dráttarbáti samkvæmt tilboði Damen Shipyards í Hollandi.
Tilboðið hljóðaði upp á 7.594.00 evrur, eða jafnvirði tæplega 1.040 milljóna íslenskra króna. Akraneskaupstaður er með tæplega 11% eignarhlut í Faxaflóahöfnum og er Ragnar B. Sæmundsson er aðalmaður í stjórn Faxaflóahafna.
Tilboð í smíði á nýjum dráttarbáti voru opnuð í nóvember sl.
Báturinn átti að vera um 33 metrar á lengd og hafa 80 tonna togkraft, að því er fram kemur í Morgunblaðinu. Nýja skipið verður öflugasti dráttarbáturinn í flota Faxaflóahafnar. Alls eru fjórir slíkir bátar í notkun og er sá öflugasti með 40 tonna togkraft.
Hafnarstjórn Faxaflóahafna sf. er þannig skipuð:
Fyrir hönd Akraneskaupstaðar (10,7793 %).
Aðalmaður:
Ragnar B. Sæmundsson
Varamaður:
Karitas Jónsdóttir
Áheyrnarfulltrúi:
Ólafur Adolfsson
Fyrir hönd Reykjavíkurborgar (75,5551 %).
Aðalmenn:
Kristín Soffía Jónsdóttir, formaður
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir
Skúli Helgason
Valgerður Sigurðardóttir
Örn Þórðarson
Varamenn:
Sabine Leskopf
Pawel Bartoszek
Magnús Már Guðmundsson
Marta Guðjónsdóttir
Hildur Björnsdóttir
Áheyrnarfulltrúi starfsmanna
Aðalmaður:
Júlíus V. Guðnason
Fyrir hönd Borgarbyggðar og Skorrdalshrepps (4, 35 %):
Aðalmaður:
María Júlía Jónsdóttir
Varamaður:
Lilja Björg Ágústdóttir
Fyrir hönd Hvalfjarðarsveitar (9,384 %):
Aðalmaður:
Daníel Ottesen
Varamaður:
Björgvin Helgason
Auglýsing
Auglýsing