Auglýsing
Breytingar verða gerðar við Aggapall við Jaðarsbakka til þess að bæta starfsmanna – og salernisaðstöðu við Guðlaugina. Húsið sem hefur verið við Aggapall undanfarin misseri verður tekið í burtu.
Fyrrum skrifstofuhús Golfklúbbsins Leynis verður sett upp við Aggapallinn en það er mun stærra en það hús sem hefur verið notað fram til þessa.
Þetta kemur fram í fundargerð Bæjarráðs Akraness.
Akraneskaupstaður greiða Golfklúbbnum Leyni 6.000.000 kr.,
þar af 5.750.000 kr. fyrir húsið og 250.000 kr. fyrir flutning þess.
Bæjarráð vísaði samningnum til staðfestingar í bæjarstjórn Akraness.
Skrifstofuhús Leynis verður flutt og sett upp við Aggapall og Guðlaugina.
Húsið sem hefur verið við Aggapallinn verður tekið í burtu og stærra hús sett í staðinn.
Auglýsing
Auglýsing