Auglýsing
ÍA náði frábærum úrslitum gegn FH í 2. umferð á Fótbolti.net mótinu í Akraneshöllinni í morgun. Gestirnir úr Hafnarfirði komust tveimur mörkum yfir eftir 30 mínútna leik.
![](https://skagafrettir.is/wp-content/uploads/2019/01/ÍA-FH-2018-Mjólkurbikar3-1132x670.jpg)
Skagamenn, með Bjarka Stein Bjarkason, í fararbroddi, náðu að snúa leiknum sér í hag og lönduðu frábærum 4-2 sigri. Mörkin úr leiknum má sjá hér fyrir neðan – en leikurinn var sýndur í beinni útsendingu á ÍATV.
Auglýsing
Auglýsing