Það er alltaf nóg um að vera hjá nemendum FVA sem eru á starfsbraut.
Davíð Sigurðsson og Mark F. Gíslason gerðu á dögunum flott myndbönd sem þeir unni með iMovie í áfanga þar sem hægt er að velja á milli handavinnu eða stuttmyndagerð.
Davíð og Mark gerðu gerðu kynningarmyndbönd um Skammhlaupið sem var í FVA á haustönn 2018.
Hér má sjá afraksturinn:
Skammhlaup 2018 (myndband e. Davíð Sigurðsson)
Skammhlaup haustönn 2018 (myndband e. Mark F. Gíslason).
Starfsbraut Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi var formlega stofnuð árið 1993. Hún er ætluð nemendum sem hafa notið verulegrar sérkennslu í grunnskóla, verið í sérdeild og/eða verið kennt skv. einstaklingsnámskrá í grunnskóla.
Fyrstu árin var gert ráð fyrir að nemendur brautskráðust að loknu tveggja ára námi. Á haustönn 2001 var námstíminn lengdur og gert ráð fyrir að nemendur brautskráist eftir fjögurra ára nám.
Markmið náms á starfsbraut FVA
- að nemendur fái einstaklingsmiðuð námstækifæri
- að nemendur fái tækifæri til þess að takast á við verkefni í samræmi við eigin færni og hæfileika
- að stuðla að bættri sjálfsmynd nemenda
- að auka sjálfstæði, ábyrgð og frumkvæði nemenda
- að nemendur fái aukin tækifæri til að komast út á vinnumarkað að loknu námi