Galito í samstarf við Leyni í nýrri frístundamiðstöð



Golfklúbburinn Leynir og veitingastaðurinn Galito hafa skrifað undir viljayfirlýsingu um samstarf er tekur til reksturs veitinga og þjónustu í nýrri frístundamiðstöð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Leyni.

Galito mun reka starfssemina í frístundamiðstöðinni samhliða rekstri veitingastaðar við Stillholt og mun opna formlega þegar Garðavöllur opnar golfvöllinn sem má áætla að verði mánaðamótin apríl/maí.

Hilmar Ólafsson og Sigurjón Ingi Úlfarsson eru eigendur Galito. Hilmar segir að nýja aðstaðan og rekstur í frístundamiðstöðinni falla vel með rekstri veitingastaðarins Galito.

„Þjónusta við hópa, fyrirtæki og aðra gesti Garðavallar verður aukinn til muna með þessu samstarfi við Leyni. Veislusalur frístundamiðstöðvarinnar tekur allt að 200 manns í sæti og býður upp á mikla möguleika er varðar viðburði ýmiskonar, námskeið, ráðstefnur, brúðkaup, afmæli, fermingar svo eitthvað sé upptalið.“

Golfklúbburinn Leynir og veitingastaðurinn Galito hafa undanfarin ár átt farsælt og gott samstarf er varðar veislur og þjónustu við Garðavöll.

Framkvæmdir ganga vel á Garðavelli og eru rétt um 12 mánuðir síðan skóflustunga var tekinn að þessu glæsilega mannvirki.

Golfklúbburinn flutti sína starfssemi inn í hluta hússins um miðjan desember síðastliðinn er skrifstofuhluti og inniæfingaaðstaða var tekinn í notkun.

Áætlað er að framkvæmdum við húsið verði lokið í byrjun apríl næstkomandi og það verði formlega tekið í notkun í framhaldinu. Mikið af bókunum í veislusalinn eru nú þegar staðfestar fyrir sumarið 2019.

Auglýsing



Auglýsing