Það var mikið um að vera í gær á Smiðjuloftinu á Akranesi.
Þar hélt Klifurfélag ÍA – Klif-A fyrsta mót Íslandsmeistara mótaraðarinnar í grjótglímu.
![](https://skagafrettir.is/wp-content/uploads/2019/02/52712934_2100171290101120_3888656092648964096_o-1132x670.jpg)
Áður en Íslandsmótið hófst fór fram innanfélagsmót hjá yngstu iðkendum Klif-A. Þar sem þau sýndu foreldrum sínum og félögum færni sína á veggnum.
Rúmlega 30 keppendur voru í flokki C (12-13 ára) á Íslandsmótinu. Þar náði Sylvía Þórðardóttir frá Akranesi efsta sætinu ásamt Ásthildi Elvu Þórisdóttur frá Björkinni í Hafnarfirði.
Þrír Skagamenn enduðu í einu af efstu sætunum í drengjaflokki. Rúnar Sigurðsson var annar á eftir Garðari Loga Börnssyni, frá Klifurfélagi Reykjavíkur.
Auglýsing
Auglýsing