Bæjaryfirvöld hafa áhyggjur af öryggismálum í Hvalfjarðargöngum



Öryggsmál í Hvalfjarðargöngum voru til umfjöllunar á fundi bæjarstjórnar Akraness sem fram fór 26. febrúar s.l.

Í ályktun sem samþykkt var einróma er skorað á samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að umferðaröryggi í Hvalfjarðargöngum verði sett í forgang. Tekið verði að nýju upp mannað eftirlit við Hvalfjarðargöng og að viðbragðsáætlun vegna slysa verði tekin til gagngerrar endurskoðunar hið fyrsta.

Ályktunin er í heild sinni hér fyrir neðan:

Bæjarstjórn Akraness lýsir yfir verulegum áhyggjum af stöðu öryggismála í Hvalfjarðargöngum einungis örfáum mánuðum eftir að Vegagerðin tók við rekstrinum og mönnuð vakt við göngin hefur verið lögð af.

Þann 12. febrúar síðastliðinn varð árekstur í Hvalfjarðargöngum þar sem ekið var aftan á kyrrstæðan bíl með þeim afleiðingum að tveir menn slösuðust.

Í frétt Vísis frá 12. febrúar sl. og frétt Skessuhorns frá 20. febrúar sl. kemur fram að bíllinn sem ekið var á hafi verið kyrrstæður í 15-20 mínútur án þess að við því væri brugðist þar sem bíllinn var ekki sjáanlegur í myndavélakerfi ganganna. Þá hefur einnig komið fram að verulegar brotalamir voru í framkvæmd viðbragðsáætlunar í kjölfar árekstursins, t.d. var slökkvilið ekki kallað út með forgangi þrátt fyrir mögulega eld- og sprengihættu.

Með vísan til framangreinds krefst bæjarstjórn Akraness þess að samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra setji umferðaröryggi í Hvalfjarðargöngum í forgang. Tekið verði að nýju upp mannað eftirlit við Hvalfjarðargöng og að viðbragðsáætlun vegna slysa verði tekin til gagngerrar endurskoðunar hið fyrsta.

Ályktunin er send samgönguráðherra, umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, þingmönnum Norðvesturkjördæmis og Vegagerðinni.

 

Auglýsing



Auglýsing