Sr. Eðvarð Ingólfsson hverfur til nýrra starfa



Sr. Eðvarð Ingólfsson sóknarprestur í Akraneskirkju og biskup Íslands hafa gert með sér samkomulag um að sr. Eðvarð takist á hendur ný verkefni í vígðri þjónustu kirkjunnar og hverfi frá núverandi þjónstu sem sóknarprestur Garðaprestakalls frá og með 1. apríl 2019.

Frá sama tíma fellur skylda til að halda úti prestssetri á Akranesi niður og hefur kirkjumálasjóður, sem er eigandi þess, hafið söluferli á eigninni.

Þetta kemur fram á vef Akraneskirkju en fréttavefurinn Skessuhorn greindi fyrst frá.

Sr. Eðvarð hefur verið sóknarprestur á Akranesi frá 1997. Áður var hann sóknarprestur á Skinnastað í Öxarfirði í tvö ár.

Auglýsing



Auglýsing