Arnór var hetjan í grannaslagnum í Moskvu – sjáðu mörkin



Skagamaðurinn Arn­ór Sig­urðsson var hetjan í grannaslagnum um Moskvu í rússnesku úrvalsdeildinni í dag.

Arnór, sem er fæddur árið 1999, skoraði bæði mörk CSKA Moskvu gegn Spartak Moskvu. Leikurinn var á heimavelli Spartak.

Arnór hafði fyrir leikinn í dag skorað fleiri mörk í Meistaradeild Evrópu en í rússnesku úrvalsdeildinni.

Alls hefur Arnór nú skorað þrjú mörk í rússnesku deildinni en hann hefur skorað tvö mörk í Meistaradeild Evrópu,.

CSKA er í þriðja sæti deild­ar­inn­ar með 40 stig, fjór­um stig­um minna en topplið Zenit.

Auglýsing



Auglýsing