Veðrið lék við stóran hóp hjólreiðafólks úr Team Rynkeby liðinu á Akranesi í dag.
Um var að ræða fyrstu sameiginlegu æfingu Team Rynkeby liðsins sem mun hjóla frá Kolling í Danmörku til Parísar í Frakklandi í sumar.
Um er ræða fjáröflunarverkefni til styrktar krabbameinssjúkum börnum og er þetta í þriðja sinn sem Ísland tekur þátt.
Fjölmargir Skagamenn eru í Team Rynkeby. Guðrún Gísladóttir er að fara í þriðja sinn í þetta verkefni en Kristinn Reimarsson fer í annað sinn í sumar
Skagafréttir ræddu við Guðrúnu og Kristinn í morgun í veðurblíðunni þegar hópurinn bjó sig undir æfinguna.
Team Rynkeby hófst árið 2002 þegar ellefu starfsmenn Rynkeby Foods ákváðu að hjóla til Parísar til að sjá Tour de France hjólreiðakeppnina. Rynkeby Foods var aðalstyrktaraðili hópsins og svo vel gekk að fá styrki að hagnaður var af ferðinni.
Þegar heim var komið afhenti hópurinn krabbameinsdeild sjúkrahússins í Óðinsvéum umtalsverða fjárhæð og þar með var búið að skapa hefðina.
Team Rynkeby liðin hafa öll sömu markmið sem eru:
- Að safna peningum fyrir krabbameinssjúk börn í hverju landi fyrir sig og til rannsókna á þessum banvæna sjúkdómi.
- Að koma þátttakendum í það gott form að þeir geti hjólað frá Danmörku til Parísar, tæplega 1.300 km.
- Að hafa gaman, þátttakendur styðji hvort annað, líkamlega sem andlega og nái markmiðum sínum.Nánari upplýsingar á heimasíðu TeamRynkeby á Íslandi. Nánari upplýsingar á facebook síðu íslenska hópsins.
Auglýsing
Auglýsing